LOCAL lögmenn hafa um langt skeið veitt fyrirtækjum og einstaklingum lögfræðilega ráðgjöf á sviði félagaréttar og fyrirtækjaráðgjafar þar sem lögmenn stofunnar hafa viðamikla þekkingu og reynslu. Alhliða fyrirtækjaráðgjöf er og hefur verið þungamiðja í starfsemi stofunnar allt frá stofnun. Rík tengsl og áralöng reynsla okkar á hvers kyns verkefnum á sviði félagaréttar og tengdum starfssviðum eins og skattaráðgjöf, fjármögnun og samningarétti nýtist fyrirtækjum og stofnunum í ólíkum atvinnugreinum.
Meðal verkefna sem við tökum að okkur:
Við veitum ráðgjöf um hvers kyns lagaleg álitaefni er varða stofnun félags í atvinnurekstri og val á félagaformi, þ. á m. um ákjósanlega skjalagerð vegna stofnunar félags, skattalegt umhverfi ólíkra félagaforma, ábyrgðir eigenda og gerð hluthafasamkomulaga þeirra á milli.
Hér að neðan má finna yfirlit um helstu félagaform á Íslandi: er hér neðst
Með því að tileinka sér góða stjórnarhætti tryggja fyrirtæki ekki einungis framfylgni við ákvæði laga og félagssamþykkta heldur auka slík vinnubrögð almennt virði viðkomandi félaga ásamt því að veita betri möguleika á framtíðarsölu og bæta ímynd.
LOCAL lögmenn hafa yfir að ráða sérfræðingum í góðum stjórnarháttum fyrirtækja sem hafa m.a. sinnt kennslu á því sviði um árabil. Við erum einnig viðurkenndir úttektaraðilar á stjórnarháttum fyrirtækja af Viðskiptaráði Íslands og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti hjá Háskóla Íslands, og veitum óháð mat á stjórnarháttum fyrirtækja. Fyrirtæki sem standast matsferlið fá viðurkenningu sem nefnist “Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum”.
Við veitum ráðgjöf til stjórna fyrirtækja og stofnana varðandi góða stjórnarhætti, m.a. í tengslum við hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna, gerð og yfirferð starfsreglna, stjórnarháttaryfirlýsinga, siðareglna og samsetningu stjórnar. Einnig veitum við ráðgjöf og fræðslu um samspil mismunandi stjórnareininga félaga, þ.e. framkvæmdastjórn, félagsstjórn og hluthafafundar og valdsvið þeirra innbyrðis, ákvarðanatöku innan félaga o.fl.
Þá höfum við áralanga reynslu af fundarstjórn og fundarritun á stjórnar- og hluthafafundum, önnumst alla skjalagerð í tengslum við slíka fundi, allt frá lögboðnum fundarboðum til fundargerða, og veitum alhliða ráðgjöf um það efni.
Að ýmsu þarf að huga þegar samrunar og yfirtökur félaga eru annars vegar. Mikilvægt er að rétt sé að verki staðið, hvort sem er í skjalagerð eða tilkynningum til viðeigandi opinberra aðila.
Þegar um samruna og yfirtökur er að ræða þarf gjarnan að afla heimilda frá ýmsum opinberum aðilum til að ljúka fyrirhuguðum viðskiptum, t.d. Samkeppniseftirlitinu eða fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Þá er oft ráðlegt að framkvæma lagalegar og fjárhagslegar áreiðanleikakannanir í aðdraganda umfangsmikilla viðskipta á þessu sviði. Einnig verður að huga að skattalegum afleiðingum sem leiða kunna af samrunum, yfirtökum og sölu fyrirtækja.
Sérfræðingar LOCAL lögmanna hafa viðamikla reynslu og þekkingu af framangreindum verkefnum tengdum samrunum, yfirtökum og sölu fyrirtækja. Þá býr stofan að mikilli reynslu af gerð fjármögnunarsamninga samhliða sterkum tengslum við lánastofnanir sem veitir okkur sérstöðu í frágangi viðskipta af þessu tagi.
Þjónusta okkar á sviði samruna og yfirtöku fyrirtækja tekur m.a. til eftirfarandi:
- gerð sölu- og samrunagagna og ráðgjöf þar að lútandi
- tilkynningar til eftirlitsaðila og öflun leyfa
- framkvæmd áreiðanleikakannana
- gerð fjármögnunarsamninga
- aðstoð við að útvega fjármögnun og samskipti við lánastofnanir
Vönduð vinnubrögð, þekking og reynsla okkar á öllum réttarsviðum er viðkoma samrunum og yfirtökum fyrirtækja tryggja viðskiptavinum stofunnar farsæla niðurstöðu.
Lagaumhverfi fyrirtækja er oft á tíðum flókið óháð félagaformi. Um starfsemi fyrirtækja gilda ólíkir lagabálkar sem innihalda fjölda lagareglna um réttindi og skyldur viðkomandi fyrirtækis, stjórnendur þess og hluthafa. Sem dæmi má nefna reglur sem lúta að minnihlutavernd hluthafa eins og rétti til að neyta atkvæðisréttar á hluthafafundum og bera fram tillögur á þeim vettvangi. Einnig má nefna reglur um lækkun og hækkun hlutafjár, um sölu hluta og reglur um forkaupsrétt sem almennt virkjast við slíka atburði.
Til hliðar við þetta regluverk standa svo félagssamþykktir og eftir atvikum hluthafasamningar sem kveða gjarnan á um aðra réttarstöðu en annars gildir að lögum. Því er nauðsynlegt að túlka gildandi lagareglur með hliðsjón af slíkum gerningum. LOCAL lögmenn veita mikilvæga ráðgjöf á þessu sviði til félaga, stjórnenda og hluthafa í flestum geirum atvinnulífsins.
Sérfræðingar okkar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á öllum þáttum félagaréttar sem nýtist viðskiptavinum. Við sinnum almennri hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki og hluthafa og veitum ráðgjöf um réttindi þeirra, skyldur og möguleg úrræði ef upp koma ágreiningsmál af einhverjum toga.
Meðal verkefna sem við veitum liðsinni við á sviði félagaréttar eru eftirfarandi:
- ráðgjöf við hækkun eða lækkun hlutafjár
- fjármögnun fyrirtækja og lántökur með breytirétti
- gerð kaupréttarsamninga við starfsmenn
- gerð og túlkun hluthafasamninga og samþykkta
- almenn hagsmunagæsla og ráðgjöf vegna ágreiningsmála
LOCAL lögmenn hafa yfirgripsmikla þekkingu á sviði persónuverndar og veita lögaðilum ráðgjöf um réttindi þeirra og skyldur í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og aðstoð með framfylgni við persónuverndarlög. Jafnframt hefur stofan sinnt hagsmunagæslu fyrir einstaklinga gagnvart ólögmætri notkun persónuupplýsinga.
Meðal verkefna okkar á sviði persónuverndar eru:
- Ráðgjöf til lögaðila varðandi vinnslu persónuupplýsinga og réttindi og skyldur samkvæmt persónuverndarlögum
- Starf persónuverndarfulltrúa fyrir fyrirtæki og stofnanir
- Innleiðing ferla og aðgerða hjá lögaðilum til að framfylgja kröfum persónuverndarlaga varðandi vinnslu persónuupplýsinga, þ.á.m.:
- gerð vinnsluskráa, persónuverndarstefna og verklagsreglna
- gerð vinnslusamninga milli ábyrgðaraðila og vinnsluaðila
- ráðgjöf við framkvæmd mats á áhrifum á persónuvernd („MÁP“)
- Úttekt hjá lögaðilum á framfylgni við kröfur persónuverndarlaga
- Hagsmunagæsla vegna erinda frá Persónuvernd
x
x
x