LOCAL lögmenn hafa margra ára reynslu og þekkingu af verkefnum tengdum hjúskapar- og sambúðarmálum. Þjónusta okkar felst m.a. í gerð kaupmála vegna hjúskapar. Jafnframt veitum við alhliða ráðgjöf við hjónaskilnað og sambúðarslit s.s. í tengslum við fjárskiptasamninga og aðra nauðsynlega skjalagerð.
Fyrir marga er skilnaður stærsta áfall sem fólk verður fyrir. Þá er mikilvægt að leita sér faglegrar ráðgjafar enda miklir hagsmunir í húfi og brýnt að staðið sé rétt að málum.
Hér að neðan má finna hagnýtar upplýsingar varðandi kaupmála, hjónaskilnað og sambúðarslit.
Kaupmáli
Kaupmáli er formfastur skriflegur samningur sem aðeins er gerður á milli tveggja einstaklinga sem eru ganga í hjúskap eða hafa gengið í hjúskap. Það getur verið æskilegt að ganga frá kaupmála við upphaf hjúskapar til að tryggja að, ef til skilnaðar kæmi, að hvor um sig geti haldið þeim verðmætum sem þau koma með í hjúskapinn.
Þótt kaupmálar séu aðallega útbúnir við upphaf hjúskapar þá er heimilt að gera kaupmála eftir að fólk hefur gengið í hjúskap. Hins vegar getur kostnaður við slíka kaupmála verið meiri, ef breyta þarf eignarhaldi á skráðum fasteignum. Kaupmálar eru gjarnan gerðir á milli fólks sem er að ganga í hjónaband ef verulegur munur er á eigna/skuldastöðu fólks við upphaf hjúskapar. Kaupmálar eru skráðir í sérstaka kaupmálabók hjá sýslumanni og eru þannig opinbert skjal.
Hjónaskilnaður
Þegar fólk hefur gengið í hjúskap, en af einhverjum ástæðum vill slíta hjúskapnum er hægt að óska eftir skilnaði að borði og sæng. Í undantekningartilfellum er hægt að óska eftir beinum lögskilnaði.
Ef hjón eru sammála um að slíta hjúskapnum geta þau leitað til sýslumanns en ella þurfa þau að leita eftir atbeina dómstóla.