LOCAL lögmenn er leiðandi lögmannsstofa á sviði dvalar- og atvinnuleyfa. Víðtæk sérfræðiþekking innan stofunnar, skilvirk vinnubrögð og rótgróin tengsl við Útlendinga- og Vinnumálastofnun tryggja framúrskarandi þjónustu á þessu sviði.
Sérfræðingar stofunnar veita fyrirtækjum sérhæfða og alhliða þjónustu í tengslum við hvers kyns álitamál er varða dvalar- og atvinnuleyfi, svo sem í tengslum við ráðningu erlendra starfsmanna og búferlaflutninga listamanna og íþróttafólks. Við veitum jafnframt liðsinni vegna umsókna um íslenskan ríkisborgararétt.
Þjónusta okkar er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar fyrir sig og er markmiðið að ferlið gangi snuðrulaust fyrir sig til að viðkomandi starfsmaður geti flutt til landsins og hafið störf á tilsettum tíma. Aðstoðin felst m.a. í því að veita ráðgjöf um dvalar- og atvinnuleyfismál, öflun gagna og frágangi umsókna og í hagsmunagæslu gagnvart Útlendinga- og Vinnumálastofnun þar til umsókn hefur verið afgreidd.
Jafnframt veitum við erlendum starfsmönnum og vinnuveitendum sérsniðna þjónustu á borð við:
- aðstoð vegna búslóðaflutninga
- leit að hentugu húsnæði fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra
- leigusamningsgerð um húsnæði
- aðstoð vegna skólagöngu barna
- aðstoð vegna heilbrigðismála
Þannig fylgjum við dvalar- og atvinnuleyfismálum eftir frá upphafi til enda og einföldum verulega ferlið við að fá erlenda starfsmenn til starfa.
Það er ekki auðvelt að flytjast á milli landa og því getur fylgt álag bæði fyrir starfsmenn og vinnuveitendur vegna hins flókna lagaumhverfis sem þar er undir. Mikilvægi faglegrar og persónulegrar ráðgjafar um þetta efni verður því seint ofmetið. Með því að nýta þjónustu okkar er dregið verulega úr álagi sem fylgt getur umsóknum um dvalar- og atvinnuleyfi fyrir erlenda starfsmenn sem og aðlögun starfsmannsins og fjölskyldu hans að íslenskum aðstæðum.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni okkar Relocation.is