Áslaug er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hún er með cand. jur gráðu frá Háskóla Íslands og DESS gráðu í alþjóðlegum viðskiptarétti frá Université d’Aix í Marseille í Frakklandi.
Áslaug sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki varðandi dvalar- og atvinnuleyfi á Íslandi. Hún hefur aðstoðað fjölmörg íslensk og erlend fyrirtæki, sem og einstaklinga, við umsóknarferli og skráningu EES-ríkisborgara hjá Þjóðskrá. Þjónusta Áslaugar felur meðal annars í sér ráðgjöf um heimild til dvalar á Íslandi, leiðbeiningar varðandi nauðsynlega gagnaöflun og umsóknarferlið, auk samskipta við ríkisstofnanir. Þá veitir hún einnig ráðgjöf á sviði skattaréttar fyrir fyrirtæki og einstaklinga, annast samskipti við skattyfirvöld fyrir hönd umbjóðenda sinna og sinnir hagsmunagæslu gagnvart yfirskattanefnd. Áslaug hefur einnig komið að fjölmörgum málum í erfðarétti og annast margvíslega samningagerð.
Áslaug er ein af stofnendum LOCAL lögmanna. Í gegnum árin hefur hún setið í nokkrum stjórnum s.s. hjá Saga Capital, FKA og Rótarýklúbbnum Reykjavík-Landvættir þar sem hún hefur einnig gegnt embætti forseta.
Þegar kemur að áhugamálum eru útihlaup, líkamsrækt og fjallgöngur um hálendið efst á baugi. Áslaug er líka mikil félagsvera og nýtur þess að vera með fjölskyldu og vinum. Þá leggur hún stund á frönsku við Háskóla Íslands meðfram vinnu.
