Guðrún er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi og Landsrétti. Hún er útskrifuð frá Háskóla Íslands með cand. jur gráðu og er með LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Leiden háskólanum í Hollandi. Þá hefur hún lokið námi í sáttamiðlun og verðbréfamiðlun ásamt því að vera með umboðsmannaréttindi hjá KSÍ.
Guðrún hefur víðtæka reynsla af því að veita bæði fyrirtækjum og einstaklingum lögfræðiþjónustu. Þegar kemur að fyrirtækjaráðgjöf ber helst að nefna ráðgjöf í tengslum við hluthafamál, kaup- og sölur hluta/fyrirtækja svo og margs konar samninga sem þörf er á hverju sinni, svo sem þjónustu-, verk- og starfssamninga. Hvað varðar ráðgjöf til einstaklinga má nefna álitamál í tengslum við erfðamál og dánarbússkipti, aðstoð við fjárslit hjóna og sambúðarslit. Meðfram þessu tekur hún svo að sér þann málflutning sem fellur til samhliða verkefnum hennar fyrir viðskiptavini sína.
Guðrún er ein af stofnendum LOCAL lögmanna. Hún hefur setið í stjórn Eikar fasteignafélags frá árinu 2016 og kennir á námskeiði hjá Endurmenntun HÍ um erfðamál.
Utan vinnu nýtur Guðrún þess að vera utandyra. Hún stundar hlaup, fer reglulega í fjallgöngur og spilar líka golf og reynir þá að hemja keppnisskapið.
